Bóndarós – fallegt blóm með róandi eiginleika

Kynntu þér sögu kínversku bóndarósarinnar (Paeonia lactiflora) – hefðbundins innihaldsefnis í EaseFormula sem hefur verið notað í meira en 1200 ár.

Bleik bóndarós (Paeonia lactiflora) í blóma í garði – bóndarós er eitt af innihaldsefnum EaseFormula

Inngangur

Í erli dagsins getur álagið á taugakerfið orðið of mikið. Streita, svefnleysi og sífelldar kröfur geta haft áhrif á það hvernig okkur líður, bæði líkamlega og andlega. Þess vegna þróuðum við EaseFormula™, þar sem kínversk bóndarós er mikilvægasta innihaldsefnið.

En hvað er kínversk bóndarós eiginlega og af hverju hefur þessi planta verið svona mikils metin í aldaraðir? Skoðum nánar sögu þessa heillandi innihaldsefnis og vísindin að baki því.

Saga bóndarósarinnar

Hefðbundnar kínverskar lækningar

Kínversk bóndarós (Paeonia lactiflora), sem í hefðbundnum kínverskum lækningum er einnig kölluð „Bai Shao“, hefur verið notuð í meira en 1200 ár. Rót þessarar fallegu plöntu var hornsteinn í klassískum kínverskum jurtablöndum, oft ásamt öðrum jurtum í blöndum í góðu jafnvægi.

Í kínverskri læknishefð var bóndarósin talin jurt sem „styrkir yin“: hún var notuð til að stuðla að ró, jafnvægi og samhljómi í líkamanum.

Úr austri til vesturs

Í dag er bóndarósin viðfangsefni nútímarannsókna. Rannsakaðir hafa verið lífvirkir efnisþættir plöntunnar, svo sem peóníflórín og önnur glýkósíðsambönd sem geta haft áhrif á boðefnakerfið.

Rannsóknir á bóndarós beinast að því hvernig þessi náttúrulegu efni geta stutt við starfsemi taugakerfisins og stuðlað að tilfinningu fyrir ró og vellíðan*.

Hvernig virkar bóndarós?

Rót bóndarósarinnar inniheldur nokkur lífvirk efnasambönd og af þeim hefur peóníflórín verið mest rannsakað. Í forklínískum rannsóknum hafa komið fram áhugaverðir eiginleikar þess:

Stjórnun boðefna

Samkvæmt rannsóknum getur bóndarós haft áhrif á GABA-kerfið (gamma-amínósmjörsýru), helsta hamlandi boðefni líkamans. GABA gegnir lykilhlutverki í að stýra taugaboðum og stuðla að ró í miðtaugakerfinu.

Stuðningur við HPA-ásinn

Sumar rannsóknir hafa skoðað möguleg áhrif bóndarósar á undirstúku–heiladinguls–nýrnahettuásinn (HPA-ásinn), helsta streituviðbragðakerfi líkamans. HPA-ás í jafnvægi skiptir máli til að takast á við streituvalda daglegs lífs.

Andoxunareiginleikar

Bóndarós inniheldur einnig náttúruleg andoxunarefni sem geta hjálpað til við að vernda taugafrumur gegn oxunarálagi, sem getur skert eðlilega starfsemi frumnanna.

Bóndarós í EaseFormula™

Í EaseFormula™ notum við 75 mg af stöðluðu bóndarósarþykkni í hverjum dagskammti. Þykknið er vandlega valið svo styrkur virku efnanna sé jafn frá einum skammti til annars.

Gæði og stöðlun

Bóndarósin okkar kemur úr ræktun undir eftirliti og fer í gegnum strangt gæðaeftirlit. Við stöðlum þykknið svo styrkur mikilvægustu efnanna, einkum peóníflóríns, sé jafn.

Samsetningin skiptir máli

Bóndarósin stendur ekki ein í EaseFormula™. Við höfum sameinað hana magnesíum, B-vítamínum og öðrum nauðsynlegum næringarefnum sem öll stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfisins¹. Þannig færðu víðtækan stuðning við ólíka þætti heilbrigðs taugakerfis.

Fyrir hverja er bóndarós?

Bóndarós getur verið dýrmæt viðbót fyrir þig ef þú:

  • gengur í gegnum tímabil með meiri streitu eða álagi en venjulega
  • vilt náttúrulegan stuðning við taugakerfið
  • kannt að meta innihaldsefni sem eiga sér langa hefð
  • leitar að valkosti við tilbúnar lausnir
  • vilt sameina nútímavísindi og hefðbundna þekkingu

Gott að vita: fæðubótarefni kemur ekki í stað fjölbreytts mataræðis eða heilbrigðra lífshátta. Bóndarósinni er ætlað að bæta við góðar venjur, eins og nægan svefn, hollt mataræði og reglulega hreyfingu, en ekki að koma í stað þeirra.

Öryggi og varúðarráðstafanir

Bóndarós hefur lengi verið notuð á öruggan hátt, en eins og með öll fæðubótarefni er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Barnshafandi konur og konur með barn á brjósti ættu að ráðfæra sig við lækni fyrir notkun
  • Ef þú tekur lyfseðilsskyld lyf skaltu ræða mögulegar milliverkanir við lækni
  • Ekki má neyta meira en ráðlagðs dagskammts
  • Varan er ekki ætluð einstaklingum yngri en 18 ára
  • Geymdu vöruna á þurrum og dimmum stað þar sem börn hvorki ná til né sjá

Heimildir

  1. Zhong X, et al. The therapeutic effects of paeoniflorin in depression and anxiety. Phytotherapy Research. 2021 pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/34145656/
  2. Zhang L, et al. Paeoniflorin: A Review of Its Mechanisms and Pharmaceutical Applications. Frontiers in Pharmacology. 2019 pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/31191310/
  3. Qiu Y, et al. Paeoniflorin protects cortical neurons from beta-amyloid-induced neurotoxicity. Journal of Ethnopharmacology. 2015 pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/25542386/
  4. Wang W, et al. The anxiolytic effect of paeoniflorin and its mechanism. Phytomedicine. 2018 pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/30466972/

* Hefðbundin notkun, ekki metin af EFSA. ¹ Leyfðar heilsufullyrðingar samkvæmt reglugerð (ESB) nr. 432/2012.